Hlaupaleikir Boltaleikir Áætlanir Skalar Skólamet
Fastir liðir Skólanámskrá Sund Valáfangar Kennarar
Myndir Afrekshópur Fréttir Íþróttamannvirki Upphafssíða

 


Um vefinn

Markmiðið með þessum vef er að halda utan um íþróttakennslu í Setbergsskóla. Hér er leikjasafn yfir þá leiki sem eru notaðir í kennslu ásamt æfingar fyrir hinar ýmsu íþróttir. Þeir einkunnaskalar sem nemendur eru dæmdir eftir á prófum eru hér ásamt skólametum, myndum, kennsluáætlunum, myndum úr kennslunni ásamt öðru sem viðkemur íþróttakennslunni.

Setbergsskóli
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989. Fyrsta skólaárið voru nemendur 187 í 11 bekkjardeildum.

Merki skólans er eftir Sigurð Einarsson Sólbergi 2, en rendurnar þrjár tákna Setbergið sem er grunnur barnanna. Þau eru á mismunandi aldri, en sækja upp á við í þjóðfélaginu.

Í Setbergsskóla eru um 614 nemendur í vetur. Þeir eru á aldrinum 6 - 15 ára. Bekkjardeildir eru 29. Í skólanum starfa um 45 kennarar auk skólastjóra, aðstoðarskólastjóra og deildarstjóra. Hér starfa auk þess húsvörður, ganga- og baðverðir, skólaliðar, matráðskonur, námsráðgjafar, sálfræðingur, skólaritari, hjúkrunarfræðingur, stuðningsfulltrúar, starfsmenn heilsdagsskóla og starfsmenn við ræstingu eða alls um 100 manns.